Snorri Sturluson

15.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í haust höfum við lesið Sögueyjuna 1, sem er Íslandssöguhluti samfélagsfræðinnar. Í desember tókum við svo skorpu í kristinfræðinni og gerum það aftur fyrir páska. En þessa dagana erum við að skipta yfir í Snorra sögu, sem er skrifuð af Þórarni Eldjárn og er skemmtileg nálgun fyrir 11 ára krakka.


Við munum lesa bókina saman í skólanum og í lokin munu krakkarnir svo skrifa ritgerð um Snorra. Við bendum á að bókina er hægt að nálgast sem hljóðbók hér , ef einhverjir vilja undirbúa sig betur heima.


Að Snorra sögu lokinni skiptum við svo yfir í landafræðina fram að páskum og fræðumst um Norðurlöndin.