Snorra saga öll

19.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þessa dagana erum við að klára söguhluta samfélagsfræðinnar með endursögn Snorra sögu Sturlusonar. Við tekur landafræðin, þar sem viðfangsefnið er Norðurlönd. Ef krakkarnir ná ekki að klára heima í landafræðinni, þá sendum við vinnubókina heim til að hægt sé að klára ókláraða vinnu. Við hlökkum til að hefjast handa í landafræðinni, enda mjög miklir möguleikar á alls kyns uppbroti á hefðbundinni kennslu.