Snjóbyggingar

15.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag gripum við tækifærið, fyrst þessi flotti byggingasnjór var kominn, og skelltum okkur út í blómagarð í byggingaframkvæmdir.  Þar voru byggð virki, snjókarlar, útsýnispallur, rennibraut.  Einnig litu margir englar dagsins ljós.  Þetta var frábær tími og voru allir á fullu allan tímann og kvöddu með bros á vör.  Margir hugðust halda áfram framkvæmdum eftir skóla.