Slökkviliðið í heimsókn

28.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í gær komu nokkrir slökkviliðsmenn í heimsókn og fræddu okkur um brunavarnir og fleira tengt hvað gera á ef upp kemur eldur á heimilum. Krakkarnir fengu bækling og  bók. Aftast í bókinni er getraun sem þau eiga að svara með foreldrum og skila sem fyrst í skólann. Einnig fengu nemendur að máta slökkviliðshjálminn (myndir af heimsókninni eru komnar á myndasíðuna).