Skreytingadagur og litlu jól

16.12.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á mánudaginn er skreytingadagur og skólastarf frá kl. 8:00-12:00. Boðið verður upp á súpu í mötuneytinu fyrir þá sem eru í áskrift, áður en nemendur fara heim. Aðrir koma með tvöfalt nesti.

Á þriðjudaginn eru svo litlu jólin og mæta allir prúðbúnir kl. 9:00 með smákökur og drykki að eigin vali - aðra en orkudrykki. Skólastarf er til kl. 12:00 og strætó fer heim um kl. 12:10. Auka strætó fer klukkustund síðar en venjulega að morgninum til að allir geti mætt kl. 9:00.

Þessa tvo daga þarf ekki skólatöskur, en nemendur þurfa að hafa nesti og pennaveski.