Skólatöskudagur
26.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun kom hún Harpa iðjuþjálfi og sýndi okkur hvernig nemendur eiga að stilla skólatöskurnar sínar. Einnig sagði hún nemendum frá því að skólataskan þeirra eigi að vera um 2 kíló að þyngd og alls ekki þyngri en 3 kíló. Börnin fengu bækling með sér heim og er foreldrum bent á að kynna sér efni hans.








