Skólahlaupið

21.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á þriðjudaginn í  næstu viku fer fram hið árlega norræna skólahlaup og 9. bekkur tekur að sjálfsögðu þátt í því. Hlaupið hefst kl. 10.10 og verður hlaupið eftir Seljalandsveginum eins og undanfarin ár. Allir hlaupa inn að Seljalandi en þeir sem vilja mega halda áfram inn að golfskála - að því gefnu að þeir standist tímamörk. Kennsla hefst að nýju skv. stundaskrá kl. 13:05.