Skólahlaup og sjálfstyrkingarnámskeið
28.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Norræna skólahlaupið var á þriðjudaginn síðastliðinn í blíðskaparveðri og tóku 8.bekkingar að sjálfsögðu þátt í því. Tvær vegalengdir voru í boði, 6 og 8 kílómetrar, og fóru langflestir þá lengri enda metnaðarfullir krakkar. Katrín Ósk Einarsdóttir var fyrsti 8.bekkingurinn til að koma í mark og var hún einnig fyrst af öllum stelpunum á unglingastigi. Gunnar Þór Valdimarsson og Andri Fannar Sóleyjarson komu fyrstir af strákunum í árganginum. Alls hljóp 8.bekkur 254 km sem er eins og vegalengdin frá Ísafirði til Bjarkalundar.
Í næstu viku er 8.bekk boðið á sjálfstyrkingarnámskeið, en það er VáVest sem býður upp á það. Bekknum verður skipt upp í fjóra hópa og mun hver hópur vera einn dag frá kl.9:40-14:00 á námskeiðinu. Elísabet Lorange, listmeðferðarfræðingur hjá Vímulausri æsku/Foreldrahúsi, annast námskeiðið.








