Skólahlaup og góðir gestir

12.09.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Eins og fram kom á haustfundinum með foreldrum s.l. miðvikudag, er ýmislegt framundan í skólanum annað en hefðbundin kennsla skv. stundaskrá.


Á þriðjudaginn 16. september fer fram hið árlega norræna skólahlaup, svo þá er mikilvægt að koma í góðum skóm og klædd til að vera úti.


Á fimmtudaginn, 18. september fáum við tvær góðar heimsóknir. Annars vegar er það tónlistarhópurinn Tríópa sem kemur hér á vegum verkefnisins Tónlist fyrir alla og heldur tónleika í Hömrum. Hins vegar eru það feðginin Selma Hermannsdóttir og Hermann Jónsson sem flytja okkur fyrirlestur um einelti, í sal skólans.