Skólaferðalag
01.06.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

10. bekkur fór í síðustu viku í skólaferðalag að Bakkaflöt í Skagafirði. Ekki voru veðurguðirnir okkur hliðhollir, en það var norðan vindur og rigning. Þrátt fyrir veðrið voru nemendur duglegir að taka þátt í Rafting, Paintball, Klettaklifri, Wipeoutbraut og einnig var farið í sund á Hofsósi og bílasafn að Stóragerði heimsótt. Meðfylgjandi myndir tala sínu máli.








