Skólabyrjun

24.08.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Gaman í skólanum


 


Skólastarfið hefur farið vel af stað hjá okkur í 1. bekk.  Við höfum farið um skólann og lært að rata um hann.  Einnig höfum við farið í stærðfræði og samfélagsfræði svo eitthvað sé nefnt.  Í næstu viku byrjum við svo á lestrarkennslunni og svo ætlum við í fjallgöngu í Stór-urð.  Nánari upplýsingar er svo að finna á vikuáætlun.