Skógarferðinni frestað.
27.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Skógarferð frestað fram á fimmtudag.
Þar sem veðurspáin spáir rigningu, norðanátt og 3 stiga hita á morgun ætlum við að fresta skógarhjólaferðinni fram á fimmtudag og því verður venjulegur skóladagur á morgun. Við ætlum að halda okkar striki á miðvikudaginn og fara inn í Súðavík enda strax skárri veðurspá fyrir miðvikudaginn þó það verði kalt.
Seinasti danstíminn er kl. 12.20 á morgun og þá eru foreldrum velkomið að kíkja í heimsókn og sjá afrakstur vetrarins.
Dagskráin næstu daga.
Þiðjudaginn 28. maí. Venjulegur skóladagur og danstími kl. 12.20 þar sem foreldrum er boðið í heimsókn.
Miðvikduagurinn 29. maí. Skemmtiferð í Raggagarð
Fimmtudagurinn 30. maí. Hjólaferð í Tunguskóg
Föstudagurinn 31. maí. Vorverkadagur
Mánudagurinn 3. júní. Hjólaferð í Hnífsdal
Þriðjudagurinn 4. júni. Síðasti kennsludagur fyrir sumarfrí og frágangur í skólastofu.
Kveðja Helga








