Skógarferð
30.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Skógarferð
Í morgun hjóluðum við inn í Tunguskóg ásamt vinum okkar í 3. bekk. Þegar þangað kom tókum við okkur nestispásu og síðan var frjálsleikur á meðan kennararnir settu upp ratleik. Síðan var öllum skipt í hópa og ratleikurinn hófst. Á hverri stöð var spurning úr námsefninu og stafur. Þegar búið var að fara á allar stöðvarnar þurfti að raða stöfunum í orð til að finna fjársjóðinn. Stafirnir mynduðu orðin UNDIR BRÚNNI og þá var bara að finna réttu brúna og kíkja undir hana, þar leyndist box fullt af sleikjóum. Síðan var aftur frjáls leikur á meðan kennararnir kveiktu upp í grillinu og því næst grilluðu þeir yfir 100 pylsur sem hurfu eins og dögg fyrir sólu ofan í þreytta og svanga krakka. Krakkarnir notuðu tækifærið og sulluðu í Bunánni, hjóluðu um nágrennið og nýttu sér leiktækin á svæðinu. Við hjóluðum síðan aftur heim kl. 12:15








