Skíða og útivistardagur

25.02.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Stefnt er að útivistardegi á Tungudal  föstudaginn 28. febrúar  fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Gert er ráð fyrir að nemendur verði á skíðasvæðinu frá  kl. 10:00-13:30. 


Við förum þess á leit við ykkur, ágætu foreldrar/forráðamenn, að þið keyrið börnin ykkar á skíðasvæðið og sækið þau aftur.  Við vitum að ekki eiga allir foreldrar auðvelt með að keyra börnin sín og því bjóðum við upp á eina ferð fyrir nemendur sem ekki eiga annarra kosta völ.  Ferð frá skóla verður kl. 9:45og  frá skíðasvæðinu kl 13:40.


Á skíðasvæðinu er hægt að leigja skíði og kostar það um 1500 kr.  Þeir nemendur sem ekki fara á skíði geta haft með sér sleða og þotur.


Sú nýbreytni verður í ár að útbúinn verður gönguhringur við skálann fyrir þá sem vilja mæta með gönguskíði. Hægt verður að leigja gönguskíði. 


Ekkert gjald verður tekið í lyfturnar. Mötuneytið mun sjá um hádegishressingu fyrir þá nemendur sem eru í áskrift í mötuneytinu.  Aðrir þurfa að koma með nesti að heiman.


Nemendur eru hvattir til að koma með hjálma og þeir nemendur sem ekki eiga hjálma geta fengið þá lánaða á staðnum (það má nota reiðhjólahjálma).