Skíða- og útivistardagur og Fimman
07.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á þriðjudaginn áætlum við að hafa skíða- og útivistardag í Tungudal. Nánar um það á mánudaginn, vonum að veðrið verði til friðs að þessu sinni.
Krakkarnir fengu niðurstöður síðasta hraðlestrarprófs með sér heim á föstudag og bið ég foreldra/forráðamenn að kvitta fyrir á blaðið og senda þau tilbaka með það á mánudaginn.
Sumir lækkuðu örlítið frá síðasta prófi og getur margt spilað þar inn í, t.d dagsformið hjá barninu og svo þarf ekki meira til en að hiksta á einu tveimur orðum.
Næstu tvær vikur (frá og með næsta mánudag) ætlum við að breyta aðeins til í heimalestrinum og gera "Fimmuna" á hverjum degi heima. Sjá nánar á vikuáætlun.








