Skíða- og útivistardagur og Árshátíð
14.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Skíða- og útivistardagurinn á miðvikudaginn gekk mjög vel. Veðrið var eins og best verður á kosið og Tungudalur skartaði sínu fegursta.
Krakkarnir voru duglegir og allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi.
Árshátíð skólans nálgast óðfluga og verður hún að þessu sinni 3.-4.apríl. Leikritið er að verða tilbúið og hefjast eiginlegar æfingar í næstu viku.
Við erum þó byrjuð að æfa dansana og sönginn.
Krakkarnir eiga að vera með blað með tveimur textum í töskunni, þá á að læra utanbókar fyrir Árshátíðina.
Búningarnir eru alltaf stór hluti af sýningunni og munum við finna hluta af þeim í búningageymslu skólans en einnig þurfum við að leita til foreldra- og forráðamanna eftir búningum
(Ef að til eru víkingabúningar (skikkjur eða slíkt) eða víkingahjálmar heima þá væru það vel þegið).








