Skemmtileg vika að baki

23.01.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í þessari viku lukum við lestrarbingóinu.  


 


Krakkakrnir hafa lesið í hljóði við hin ýmsu tækifæri síðustu tvær vikur og bingóspjaldið fylltist út smám saman.


 


Upp úr stóð hljóðlesturinn í gær þegar við fórum á Silfurtorg í fallegu veðri og stilltum okkur upp, um víð og dreif á torginu og lásum í algerri þögn !  Það var falleg sjón.


 


 


Kveðja, Erna.