Skemmtileg verkefni
18.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun kynntu krakkarnir Evrópuverkefnið sitt og þar voru mörg vel unnin og glæsileg verkefni. Við geymum þau fram á haustið og setjum þau þá upp í stofum 8. bekkjar.
Að prófum loknum í næstu viku hittum við verðandi 1. bekkinga, en þeir verða vinabekkir okkar næstu þrjú árin.
Föstudaginn 25. maí fáum við heimsókn frá Háskóla Íslands og kynnumst vinnubrögðum sem þar eru viðhöfð. Verkefnið nefnist Háskóli unga fólksins og margir finna þar örugglega eitthvað áhugavert við sitt hæfi.








