Skapandi börn

11.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Það var líf og fjör í skólanum í dag hjá okkur í 1. bekk eins og flesta aðra daga.  Í þessari viku tókum við fyrir bókina um hann Arngrím apaskott sem heillast af tónlist og tekur upp á því að semja lög á fiðlu.  Krakkarnir í 1. IS eru engir eftirbátar Arngríms og í morgun sömdu þau heilu tónverkin á skólahljóðfærin okkar.  Þeim var skipt niður í 4 til 5 manna hópa og samdi hver hópur tónverk og flutti það svo síðan fyrir bekkjarfélagana.  Þarna mátti heyra tónverk um fugla sem fíllinn fældi burt, um leikhúsferð, um fíl sem gekk um í skóginum og vindinn sem blés og að síðustu tónverk um snjókomu.  Allt frábær tónverk og synd að líklega var þetta einstakur gjörningur sem var þarna á ferðinni og óvíst að tónverkin muni hljóma afur eða eins og þau hljómuðu í morgun.  Krakkarnir í 1. JH eiga þetta eftir og líklega verður þetta á dagskrá í næstu viku hjá þeim.  Þvílík skemmtun sem þau eiga fyrir höndum.