Skáldavika- Þórarinn Eldjárn

19.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú erum við að vinna með ljóðin hans Þórarins Eldjárn. 


Krakkarnir komu sjálf með hugmyndir að því hvernig vinnunni skyldi háttað. 


 


Þetta voru hugmyndirnar þeirra: 



  • Leikþáttur um ljóð, leikið fyrir bekkinn eða tekið upp á myndband og spilað

  • Ljóð skrifað og myndskreytt í ljóðabók

  • Ljóð skrifað og myndskreytt á veggspjald

  • Ljóð lesin upp fyrir bekkinn

  • Klippimynd um ljóð


 


Sumir kjósa að vinna verkefnið í hóp og aðrir í einstaklingsvinnu :-) 


 


Það er svo gott að hafa stundum val um það hvað maður gerir og með hverjum.


 


Nemendur eru byrjaðir og gengur vinnan vel.