Skáld vetrarins

18.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Ólaf Hauk Símonarson er skáld vetrarins hjá okkur í Grunnskólanum á Ísafirði.  Þessa og næstu viku vinna krakkarnir bók um höfundinn, þau lesa, skrifa, myndskreyta og læra texta og lög. Í morgun sáu þau brot úr sýningunni Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir í flutningi  Litla leikklúbbsins en Ólafur Haukur Símonarson samdi það leikrit upp úr sögunni ásamt lögum og söngtextum.


Við viljum benda á að vikuáætlunin sem finna má á heimasíðu okkar á ekki við alla nemendur þar sem við vinnum með einstaklingsmiðað nám og fá því nokkrir krakkar öðruvísi vikuáætlun senda í tölvupósti.