Símareglur 9. bekkjar
07.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Mikið hefur verið um óhóflega notkun á símum í kennslustundum á unglingastigi. Ákveðið var á deildarfundi á unglingastigi að ræða þetta mál við nemendur og fá þá til að koma með hugmyndir um hvernig umgengni við símana ætti að vera.
Ræddu nemendur saman í hópum og skiluðu niðurstöðum til kennara. Við tókum svo saman niðursröðurnar og gerðum að einu plaggi sem nemendur samþykktu svo í síðasta lífsleiknitíma.
Reglurnar eru eftirfarandi:
Reglur um símanotkun í 9. Bekk
Hver nemandi ber ábyrgð á sínum síma.
Símar eiga að liggja á borðinu eða í vasa nemenda og ekki vera til truflunar.
Það má aðeins nota símann til hlusta á tónlist með leyfi kennara.
Ef nota á símann til að hlusta á tónlist verður að vera tilbúinn lagalisti.
Það má eingöngu taka myndir/ videó á símann í kennslustund með leyfi kennara.
Skilja þarf símann eftir þegar farið er á salerni.
Við brot á símareglum má kennari taka símann af nemanda og færa til ritara. Foreldrar / forráðamenn þurfa að sækja hann.
Munum að óheimil myndataka er lögbrot.








