Síðustu skóladagarnir

05.06.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Síðasta skólavikan hjá okkur fór að mestu leyti í útivinnu. Við gróðursettum rúmlega 140 birkiplöntur í Tungudal og síðan var farið í rúnarratleik í skóginum.


Krakkarnir unnu verkefni um húsin í bænum, en þar þurftu þau að finna ákveðnar götur og hús á Eyrinni og safna upplýsingum. Þau leituðu líka að minnismerkjum í bænum og upplýsingum um þau.


Íþrótta og leikjadagurinn tókst mjög vel með jákvæðum og glöðum krökkum.


Notið sumarið vel og komið úthvíld til starfa að því loknu. Hlíf