Síðustu skóladagar fyrir jól
12.12.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Jólaundirbúningur
Nú fer að styttast í jólafrí og hefðbundnu skólastarfi lýkur á þriðjudag.
Miðvikudaginn 19. des er skreytingadagur og þá skreyta nemendur 10. bekkjar skólastofuna sína í síðasta sinn og undirbúa skemmtiatriði fyrir litlu jólin og nokkrir aðstoða vinabekkinn 3. bekk við jólaundirbúning.
Fimmtudaginn 20. des eru Litlu jólin kl: 9 - 12 og þá koma nemendur með lítinn jólapakka ef þau vilja og mælst er til að verðmæti hans verði 500 kr.








