Síðustu dagar skólaársins
24.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur
Vikan 27.-31. maí 2013
- Mánudaginn 27. maí er hefðbundinn.
- Þriðjudaginn 28. maí, (breytt áætlun: tiltekt í stofunni)
- Miðvikudaginn 29. maí er sveitaferð að Hóli í Önundarfirði. Við leggjum af stað frá skólanum kl. 8:15 með rútu. Eftir heimsóknina ætlum við að fara í fjöruna að Holti og má koma með fötur og skóflur. Allir eiga að koma með nesti og vera klædd eftir veðri, gott að vera í stígvélum. Við munum borða hádegismat í mötuneytinu.
- Fimmtudaginn 30. maí er hjólaferð inn í Tunguskóg. Nemendur úr firðinum mæta á hjólunum sínum við strætóskýli við Skógarbraut en hinir mæta kl. 8 og munum við leggja af stað frá skólanum kl. 8:30. Allir verða að vera með hjálm, nesti í léttum bakpoka. Við munum grilla pylsur og þeir sem ekki eru í mötuneyti geta komið með pylsur og brauð að heiman.
- Föstudaginn 31. maí er vorverkadagur og verðum við út um allan bæ. Koma með nesti í léttum bakpoka og vera klædd eftir veðri. Skólatími 8-12.
Munið að vera dugleg að lesa ykkur til ánægju og yndisauka
- Mánudag og þriðjudag 3. og 4. júní er síðustu dagar skólaársins. Þá munum við vera í tiltekt og útivist. Nemendur koma með tvöfalt nesti þar sem mötuneytið er lokað. Koma með skólatösku og pennaveski.
- Miðvikudaginn 5 júní er starfsdagur og engin kennsla.
- Fimmudaginn 6 júní eru skólaslit og eiga nemendur að mæta kl. 10 og fá einkunnir afhentar. Foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir eins og ávallt :)
- Þar sem þetta er síðasta vikuáætlunin viljum við þakka ykkur foreldrum fyrir samstarfið í vetur, með ósk um að allir njóti sumarsins sem best.
Bestu kveðjur
Kristín og Ranný








