Síðustu dagar skólaársin.
30.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Kæru foreldrar og forráðamenn.
Nú er komið að síðustu dögum skólaársins.
Mötuneytið er lokað þessa síðustu daga og því verða nemendur að koma með tvöfalt nesti. Einnig er mikið um útiveru og mikilvægt að nemendur séu klæddir eftir veðri.
Dægradvöl er komin í sumarfrí, skólinn er því búinn klukkan 13:00.
Mánudagur, ferð á Náttúrugripasafnið í Bolungarvík.
8:00 - Nemendur mæta í skólann með skólatösku.
9:00 - Rúta fer af stað til Bolungarvíkur.
9:20 - Áætluð koma og nestistími.
9:40 - Hópur 1, verkefnavinna á Náttúrugripasafni.
Hópur 2, útileikir.
10:40 - Hópur 1, útileikir.
Hópur 2, verkefnavinna á Náttúrugripasafni.
11:40 - Rúta fer af stað til Ísafjarðar.
12:00 - Nesti í skólastofu.
12:20 - Frímínútur á skólalóð.
12:40 - Frágangur og önnur vinna í skólastofu.
13:00 - Skóla lýkur.
Þriðjudagur, gönguferð og grill í Stórurð.
8:00 - Nemendur mæta í skólann með morgunnesti, pylsur, pylsubrauð og fernudrykk (Þeir sem ekki borða pylsur mega koma með eitthvað annað á grillið), kennarar sjá um sósur og lauk.
9:00 - Nesti í skólastofu.
9:20 - Gengið af stað upp í Stórurð.
9:40 - Útileikir og gaman.
12:00 - Grillaðar pylsur.
12:30 - Gengið frá lagt af stað til baka.
13:00 - Skóla lýkur.
Miðvikudagurinn 4. júní – Frí
Fimmtudagur – Afhending vitnisburðar klukkan 10:00 í skólastofu.
Megi þið eiga gott sumar og við þökkum fyrir veturinn.
Kveðja Jón Heimir og Sigþrúður.








