Síðustu dagar fyrir jólaleyfi
17.12.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Kennt er skv. stundaskrá á mánudag og þriðjudag í þessari viku. Miðvikudaginn 19. desember er skreytingadagur. Þá mæta allir kl. 8 og fara heim kl. 12. Ekki þarf að hafa skólatösku, aðeins pennaveski, skæri, lím og liti. Þá skreytum við stofuna og gerum allt klárt fyrir litlu jólin. Matur í mötuneytinu er kl. 11:40.
Á fimmtudaginn 20. des. eru litlu jólin. Þá koma 9. bekkingar sparibúnir beint í stofuna okkar kl. 9:00. Kl. 9:40 förum við og dönsum kringum jólatréð í anddyrinu og förum síðan aftur upp í stofu til kl. 12. Þá má hafa með sér smákökur og gos - ekki sælgæti.
Ætlunin er að skiptast á smágjöfum eins og venjulega. Pakkinn má kosta 500 kr. og honum þarf að skila ekki seinna en á miðvikudag.
Kennsla hefst að nýju skv. stundaskrá 4. janúar 2013.








