Síðasta vinnuáætlun vetrarins
25.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

29. maí – 5. júní 2012
Nú er öll bókleg kennsla að baki þetta skólaárið og við taka útivistardagar. Þá er mjög mikilvægt að allir séu klæddir eftir veðri. Þessa daga þurfa allir að hafa einfalt nesti í bakpoka. Einnig er gott að hafa vettlinga og húfur meðferðis.
- Á mánudag er annar í hvítasunnu og engin kennsla.
- Á þriðjudaginn er leikjadagur hjá 5. – 7. bekk. Nemendur eiga að mæta kl. 8:45 fyrir framan matsalinn og lýkur skóla um kl. 12:00.
- Á miðvikudaginn er hjólaferð í Engidal. Nemendur mæta kl. 9:00 við skólann á hjólum og með hjálma. Þeir sem búa í firðinum hittast fyrir framan Hafraholt 2 (heima hjá Auði) kl. 9:15 og hjóla þaðan. Áætluð heimkoma er um hádegið.
- Á fimmtudaginn er vorverkadagur. Þann dag er mæting kl. 8:00 og skipta árgangar með sér verkum og fegra bæinn. 5. bekkur mun tína rusl í fjörunni frá Krók og niður að Norðurtanga. Skóla lýkur um hádegið.
- Á föstudaginn er frjálsíþróttamót. Nemendur mæta kl. 9:00 við Íþróttahúsið á Torfnesi. Nemendur fara heim að því loknu.
- Mánudaginn 4. júní er starfsdagur og frí hjá nemendum.
- Þriðjudaginn 5. júní er afhending einkunna kl. 10:00. Þá mæta nemendur í sínar kennslustofur og þar með lýkur þessu skólaári.
Bestu kveðjur og takk fyrir veturinn,
Auður og Helga








