Síðasta skólavika ársins

17.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Af nógu hefur verið að taka þessa viku.  Á mánudaginn heimsótti vinabekkurinn (10. bekkur) okkur. Þau tóku þátt í aðventustund og svo spiluðum við saman ýmis spil. 
Í gær og í dag fórum við í tveimur hópum á jólasýninguna á bókasafnið.  Þar sagði Jóna Símonía okkur frá gömlu jólasveinanöfnunum og fleira um þá.  Einnig fengum við að heyra Grýlu, Leppalúða og jólaköttinn ræða saman.
Í dag fórum við einnig á dansýninguna Hnetubrjótinn í Edinborgarhúsinu.  Þar var margt að gerast og hélst athygli barnanna allan tímann.