Síðasta hefðbundna kennsluvikan!

16.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú er hvítasunnan framundan og því frí mánudag annan í hvítasunnu.  Næsta vika er síðasta hefðbundna kennsluvikan  og síðan taka við próf, útivist og ferðlög.  Gott er að fylgjast vel með vikuáætlun og sjá má skipulag maí mánaðar inn á heimasíðu skólans.  Við víxluðum ferðinni í Engidal og ferðinni í Náttúrustofu í Bolungavík þannig að við förum í hjólaferð í Engidal 27. maí og 3. júní  með rútu í Náttúrustofu í Bolungavík.