Samvera og Útistærðfræði
15.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun byrjuðum við á að fara í útistærðfræði þar sem við æfðum okkur í að finna flatarmál á misstórum ferningum og svo fengu nemendur myndir af svæðum í nágrenni skólans og áttu að finna viðkomandi svæði og mæla ummál svæðanna og skrá allar niðurstöður.
Eftir matinn var samvera með 3. Bekk þar sem krakkarnir í 2. bekk sýndu fjölbreytt atriði. Eftirfarandi atriði var boðið upp á í dag: Töfrabrögð, brandarar, spila galdrar og spilað á gítar og hljómborð. Síðan sungum við saman keðjusöng í lokin.








