Samvera með Eyrarsól

30.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun buðum við verðandi vinabekknum okkar, þ.e. krökkunum á Eyrarsól, út í leiki. Við löbbuðum upp á Sjúkrahústún og lékum okkur þar í tæpar tvær klukkustundir og nutum veðurblíðunnar og samverunnar. 


Við hlökkum mikið til að hitta þessa krakka í 1. bekk í haust. Myndir af samverunni eru komnar hér inn á myndasíðuna.