Samræmd próf
22.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í næstu viku fara fram samræmd próf hjá 10. bekk um allt land. Íslenskuprófið er á mánudag, enska á þriðjudag og stærðfræði á miðvikudag. Mæting í prófin er kl. 8:40 og próftíma lýkur kl. 12. Það má hafa með sér nesti, ekki gos eða sælgæti og gæta þarf þess að trufla ekki aðra nemendur með skrjáfi eða öðru bjástri við nestið.
Við minnum nemendur okkar á að fara snemma að sofa kvöldið fyrir próf, borða góðan morgunmat og koma vel stemmd og óstressuð í prófin. Svo er bara að einbeita sér vel og gera sitt besta. Gangi ykkur vel!








