Samantekt af haustfundi
19.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í gær var haustfundur með foreldrum, þar sem umsjónarkennarar kynntu vetrarstarfið. Fundurinn hófst á erindi Hlyns Snorrasonar fulltrúa Vá Vest hópsins um forvarnir og nauðsyn þess að foreldrar standi saman í þeim málum. Hann lagði til að foreldrar skrifuðu undir sáttmála þess efnis og er hægt að lesa hann hér. Allir viðstaddir foreldrar skrifuðu undir og mun sáttmálinn liggja frammi hjá umsjónarkennurum fyrir þá sem vilja bæta sér á listann.
Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, nýráðinn skólaráðgjafi kynnti sig og starf sitt og er hún með aðstöðu í gamla barnaskólanum. Hún er til viðtals á mánudögum frá kl. 8:00 - 15:00 og þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 8:00 - 13:00.
Jóna Benediktsdóttir aðstoðarskólastjóri gat því miður ekki mætt á fundinn, en hún sendi innlegg um dónaskap og fordóma á netinu og biður foreldra að vera vel vakandi yfir þeim málum.
Þá kynntu umsjónarkennarar fyrirkomulagið í vetur og minntu á skólareglur t.d. að hringja inn veikindi barns daglega. Á föstudaginn verður fyrsta heimavinnumappan send heim og verður skipulagið með sama sniði og í fyrra, þ.e. að skila á möppunni í síðasta lagi næsta fimmtudag. Mappan á helst alltaf að vera í töskunni, þannig að ef eitthvað meira uppáfallandi heimanám er, þá sjá foreldrar það í möppunni, sem best er að kíkja á daglega. Nemendur eiga að sjálfsögðu líka að lesa heima daglega. Þar að auki eiga þeir að gera stutta samantekt á því sem þeir lásu í hvert og eitt skipti og skrifa það með eigin orðum í stílabókina, þannig að úr verði samfelldur texti, nokkurs konar endursögn á lestrarbókinni. Við erum að fikra okkur áfram með þetta og vonandi gengur það vel.
Heimasíða bekkjarins verður vel virk í vetur, en þar koma allar upplýsingar er varða nemendahópinn, s.s. vikuáætlanir, kennsluáætlanir, myndir o.fl. Í Mentor fer svo fram persónuleg skráning á viðveru og einkunnum. Ef eitthvað kemur upp á í skólastarfinu er einnig skráð í dagbók nemenda í Mentor og sendur tölvupóstur heim, þannig að foreldrar séu vel upplýstir um stöðu mála. Ef nemendur fara ekki að fyrirmælum í kennslustundum, þá fá þeir gult spjald sem lagt er á borðið hjá þeim til aðvörunar og þá er skráð ,,truflun í tíma" í Mentor. Ef þeir láta ekki segjast og halda áfram uppteknum hætti, þá fá þeir rautt spjald, sem felur í sér eftirsetu eftir skóla. Þá hringja nemendur heim í lok dags og tilkynna foreldrum um eftirsetuna. Þetta gerum við til að gera upp málið, þannig að allir fari heim með uppgert mál og séu búnir að bæta fyrir mistök sín.
Í lok fundar buðu fjórir foreldrar sig fram sem tengiliði í 6. bekk, þeir Daníel Jakobsson, Gylfi Þór Gíslason, Sævar Ríkharðsson og Valtýr Gíslason og erum við alsælar að fá svona harðsnúið lið okkur til liðsauka í vetur.
Við viljum þakka ykkur sem sáuð ykkur fært að mæta á þennan fund og vonumst eftir góðu og gæfusömu vetrarstarfi. Það væri vel þegið að þið kíktuð við hjá okkur annað slagið og sæjuð hvað við erum að gera í skólanum, það tengir okkur öll betur.








