Ruslapokarenniferð
16.04.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag skelltum við okkur í langa útivist. Við fórum að Torfnesi með svarta ruslapoka og renndum okkur í brekkunni þar. Það var mikið fjör og voru allir ánægðir með ferðina. Myndavélin var með í för og er komið myndasafn hér á síðuna frá þessarri ferð. Svo var haldið aftur í skólann í frímínútur þar sem krakkarnir voru búnir að útbúa gæludýrabæli fyrir frímínútnaleikinn sinn, svo við smelltum nokkrum myndum af því.








