Rugludagur
21.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag vorum við í 2. og 3. bekk með ruglu-dag og var gaman að sjá hvað margir voru ófeimnir að klæða sig á frulegan hátt. Eins og að vera í förum á röngunni eða öfug, nærbuxur á höfðinu, sitt hvorum sokknum og nota peysu fyrir buxur. Allir voru sammála um að þetta hafi verið skemmtilegur dagur.
Fleiri myndir eru í myndasafninu.








