Ritunarverkefni í 9. bekk
Á hverjum mánudegi á að velja eitt af þessum verkefnum og ljúka því fyrir næsta mánudag.
Öll verkefni nema ljóð eiga að vera að lágmarki 150 orð nema annað sé tekið fram
- Skrifaðu glæpasögu í fyrstu persónu
- Skrifaðu frásögn í fyrstu persónu út frá fyrirsögn af forsíðu DV, Vísis, mbl eða RÚV
- Skrifaðu skopsögu af sjálfum/sjálfri þér í þriðju persónu
- Skrifaðu út frá einhverju sem þú hefur lesið síðustu vikuna
- Skrifaðu rímað ljóð
- Skrifaðu órímað ljóð
- Skrifaðu sögu sem fjallar um hópþrýsting
- Skrifaðu fjórar 25 orða sögur þar sem öll orðin í hverri sögu (nema smáorðin) byrja á sama staf
- Skrifaðu dagbókarfærslu um dag í lífi frægrar sögupersónu
- Skrifaðu handrit að stuttu leikriti
- Skrifaðu sögu sem gerist alfarið neðanjarðar
- Skrifaðu sögu sem heitir 'lán í óláni' og byrjar á orðunum: Ég hefði ekki átt að... Og endar á ...sem var nú eins gott!
- Skrifaðu ljóð án sagnorða
- Skrifaðu ljóð án nafnorða
- Skrifaðu ljóð án lýsingarorða
- Skrifaðu sögu í fyrstu persónu sem gerist á elliheimili
- Skrifaðu sögu sem fjallar um einelti
- Veldu eitt af nýlegum svörum vísindavefsins og skrifaðu sögu sem tengist því
- Skoðaðu eitt af ljóðum Andra Snæs Magnasonar og greindu efni þess í öreindir
- Veldu eina af smásögum Andra Snæs og skrifaðu sögu um aukapersónu úr sögunni
- Skrifaðu dagbók einnar sögupersónu sem Andri Snær hefur skapað
- Skrifaðu greinargerð um rithöfundarferil Andra Snæs
- Skrifaðu um Rithöfundinn Andra Snæ
- Skrifaðu ástarsögu sem byrjar á orðunum: Bévítans kvikindið... Og endar á ...Hann hafði alltaf elskað hana.
- Skrifaðu sögu þar sem kemur fyrir ranglátur dómari, fótboltakappi og amma kappans.
- Skrifaðu sögu þar sem kemur fyrir flekkóttur hundur, garðplöntusali og flugeldasýning.
- Skrifaðu sögu sem gerist í geimnum
- Skrifaðu sögu sem gerist á hafsbotni
- Skrifaðu sögu þar sem allar persónurnar eru í raun hlutir
- Skrifaðu sögu þar sem allar persónurnar eru talandi dýr
- Skrifaðu sögu um börn árið 2500
- Skrifaðu sögu um börn árið 1000
- Skrifaðu ævintýri þar sem þrítala kemur fyrir.
- Skrifaðu ævintýri sem byggir á öllum aðalatriðum ævintýra en eitthvað passar ekki.
- Taktu viðtal við fræga sögupersónu t.d. Harry Potter eða Sherloc Holmes
|