Reiðistjórnun

03.02.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun fjölluðum við um reiði og reiðistjórnun. Það var ánægjulegt að heyra hversu miklum framförum nemendum finnst hópurinn hafa tekið. Eins ræddum við um hvernig best er að róa sig niður. Allir nefndu svo þann í hópnum sem þeim finnst standa sig best í að hafa stjórn á sér og þannig enduðum við á að einblína á jákvæðu hliðina.