Raggagarðsferð

29.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Raggagarðsferð


Í dag lögðum við land undir fót og fórum með rútu inn í Súðavík og heimsóttum Raggagarð.  Það rættist heldur betur í úr veðrinu, milt og gott veður, þokkalega hlýtt miðað við síðustu daga og sólin kíkti aðeins á okkur.  Vilborg Arnarsdóttir stofnandi garðsins kom og bauð okkur velkomin.  Krakkarnir skemmtu sér konunglega í leiktækjunum og við skelltum nokkrum pylsum á grillið.  Það var rekið á eftir mér að fara að grilla því allir voru orðnir svo svangir eftir stanslausan leik í leiktækjunum. Það voru þreyttir en sælir krakkar sem snéru heim í lok skóladagsins þrátt fyrir eitt óhapp í ferðinni þegar Una meiddi sig.  Takk fyrir að gera þessa ferð mögulega kæru foreldrar.