Próf í náttúrufræði

08.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á morgun er vorpróf í náttúrufræði og hafa krakkarnir tekið bækurnar með sér heim. Prófað er úr allri lesbókinni ,,Maðurinn - hugur og heilsa" og mega nemendur nota úrklippubókina sína í prófinu. Í henni er nokkuð góð samantekt á efninu. Margir hafa vel unnar úrklippubækur, en þeir sem ekki eru búnir með þessar spurningar, þurfa að klára þær fyrir morgundaginn.


Þó svo að nýta megi úrklippubók í prófinu, þá fríar það ekki nemendur frá lestri fyrir prófið, þar sem úrklippubókin tekur ekki á öllu efni bókarinnar.