Pönnsubakstur og skráning foreldraviðtala
27.01.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Góðan dag.
Dagný og Arna ætla að baka pönnukökur og svo er ég að bíða eftir svari frá einni mömmu í viðbót þannig að það er nánast komið í hús
Ég þakka þeim kærlega fyrir skjót viðbrögð.
Bókun foreldraviðtala verður eins og síðast í gegnum mentor.is og fengu foreldrar/forráðamenn bréf frá skólastjóra í síðustu viku um hvernig bera sig á að við skráninguna.
Í boði eru tímar á fimmtudaginn 6.febrúar frá 8:10- 15:00 og föstudaginn 7.febrúar frá 14:00-15:00.
Ef að einhverjir komast alls ekki þessa daga hafið þá samband
Opnað verður fyrir bókanir á morgun fram á föstudag. Endilega skráið ykkur sem fyrst.








