Páskaleyfi

22.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þá er glæsilegri árshátíð lokið og stóðu krakkarnir sig mjög vel og erum við kennararnir mjög stoltir af þeim. Allir lögðu sitt af mörkum og úr varð skemmtilegt atriði 6. bekkjar, svo eftir var tekið.


Eftir síðustu sýningu gerðum við okkur glaðan dag, vorum með nesti að eigin vali, horfðum á myndir og spiluðum og spjölluðum. Myndir frá deginum í dag er að finna inni á myndasíðu árgangsins.


Við tekur langþráð páskaleyfi og hefst kennsla aftur miðvikudaginn 3. apríl samkvæmt stundaskrá.


Gleðilega páska!