Páskafrí

29.03.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


Þemadagurinn í dag var hreint út sagt frábær.  Alls staðar mátti sjá flotta krakka frá 6 ára að stálpuðum unglingum hjálpast að og vinna saman og fjölbreyttum verkefnum. 


 


Á morgun, föstudag, verður þemanu haldið áfram.  Klukkan tólf á hádegi hittast allir á Silfurtorginu og dansa og syngja saman og að lokum verður marserað í skólaportið þar sem mötuneytið býður öllum að borða saman úti.


 


Á heimasíðu skólans má finna skemmtilegar fréttir og myndbönd frá deginum sem ég hvet ykkur til að skoða.


 


Skóli hefst aftur samkvæmt stundaskrá klukkan 8:00 þriðjudaginn 10. apríl.


 


Páskakveðjur, Erna og Magga Wink