Pappírsgerð

12.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú erum við að vinna á fullu með hringrásirnar í náttúrunni.  Krakkarnir vinna í teymum með mismunandi hringrásir.  Að auki ákváðum við að búa til okkar eigin bækur með endurvinnslu í huga.  Í dag byrjuðum við á því verkefni með því að búa til pappír í kápuna á bókinni.  Þetta tókst vel og munum við vinna þetta áfram næstu viku eða vikur.  Það gleymdist nú að taka mynd af pappírsgerðinni en hér fylgir með mynd af afrakstrinum.