Pakkar afhentir
13.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Föstudaginn 2. nóvember fóru nemendur í 8.bekk með pakkana sína í kirkjuna og afhentu þá séra Magnúsi. Alls voru pakkarnir 16 og eru þeir sennilega farnir af stað til Úkraínu þar sem þeir verða færðir börnum sem búa við bágar aðstæður. Krakkarnir voru mjög ánægðir með þetta verkefni og fannst gaman að geta glatt önnur börn.








