PISA könnun

02.03.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nk miðvikudag  4. mars fer fram PISA könnun hjá 10. bekk. Könnunin fer fram í tölvustofunni milli kl: 8 og 12.


 


Ísland er ein þátttökuþjóða í umfangsmikilli alþjóðlegri rannsókn sem fer fram um þessar mundir á færni 15 ára nemenda í náttúrufræði, stærðfræði og lestri.


. Rannsóknin er á vegum OECD (Efnahags- og framfarastofn­unarinnar) og nefnist PISA ( Programme for International Student Assessment ). Alls taka nú 70 þjóðir þátt í rannsókninni, þar af öll 34 aðildarríki OECD. Markmiðið er að afla upplýsinga sem nýtast stjórnvöldum, fræðimönnum og skólastjórnendum til að meta núverandi stöðu grunnmenntunar og móta menntakerfi framtíðarinnar. Með endurteknum könnunum fæst bæði samanburður milli landa og einnig mikilvægar upplýsingar um þróun menntamála hér á landi miðað við önnur lönd. Rannsóknin var fyrst framkvæmd árið 2000, endurtekin 2003, 2006, 2009 og 2012 og nú í mars fer fram sjötta prófunin.