Óveðursdagur.

26.02.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Það var fámennt í 7. bekk í dag, aðeins átta krakkar mættir. Við vorum ekki í vandræðum með viðfangsefni þó fyrirfram ætluð dagskrá viki til hliðar. Saminn var leikþáttur, farið í búninga, hann leikinn, tekinn upp og sýndur. Farið var í spurningaleiki, dansað, lesið og spjallað. Á morgun verður upplestrarkeppnin í salnum og myndasýning frá skólabúðunum að Reykjum. Hlíf