Óvæntur glaðningur á sólardaginn
25.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á sólardaginn, 25. janúar barst 9. bekk óvæntur glaðningur þegar Hilmar pabbi Sigþórs kom í stærðfræðitíma og bauð öllum nemendum 9. bekkjar upp á pönnukökur í tilefni dagsins. Var þeim tekið fagnandi og gerð góð skil. Sannarlega gaman að fá svona óvænta heimsókn og glaðning og við þökkum kærlega fyrir okkur!








