Öll ólík, öll eins

04.09.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Grunnskólinn á Ísafirði tók á síðasta ári þátt í Comeniusarverkefni sem bar yfirskriftina „All different, all the same, Europe‘s Children.“ Verkefnið er unnið í samstarfi við fjögur önnur lönd í Evrópu, þ.e. Rúmeníu, Portúgal, Pólland og Kýpur. Það var 10. bekkur sem vann að þessu í fyrra en þetta er tveggja ára verkefni og nú hefur það komið í hlut 8. bekkjar að taka við keflinu. Markmið verkefnisins er fyrst og fremst að auka víðsýni og umburðarlyndi og eyða fordómum.


Búið er að kynna þetta lítillega fyrir krökkunum og þau tóku vel í að vera með í þessu skemmtilega samstarfsverkefni í vetur. Það verður einnig kynnt fyrir foreldrum á haustfundinum sem verður boðaður innan skamms.