Október
04.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Við höfum brallað mikið í þessari viku. Við vorum að lesa bókina Hver er sterkastur? og höfum unnið mörg skemmtileg verkefni út frá henni.
Á miðvikudag fórum við í skemmtigöngu með öllum í skólanum og enduðum niður á torgi með því að syngja og dansa við lagið Glaðasti hundur í heimi.
Rakel hjúkrunarfræðingur hefur verið að taka krakkana í skólaskoðun og á hún eftir að skoða nokkra krakka í 1-KO en klárar skoðun eftir helgi.
Gullkorn vikunnar kom þegar við vorum í útivist á mánudag og vorum búin að æfa okkur að labba á grjótgarðinum og síðan fórum við í fjöruna að leika. Þá varð einum að orði:
Förum og kyssum kellingar
Góða helgi. Helga og Kristín








